skip to Main Content

HÆTTU UM LEIÐ OG HÓTELIÐ HÆTTI

Íslensk-lesbíska lagðist í raun niður um leið og Hótel Vík lagðist niður. Þá höfðum við ekki lengur herbergi. Síðan voru liðin þessi ár sem þurfti til að við gátum farið aftur inn í Samtökin og þó að við segðum nú kannski aldrei endilega skilið við þau, við komum oft á Samtakaböll og svona, þá var þetta bara eitthvert nauðsynlegt skref í þróuninni held ég.  Að við stelpurnar  gætum þjappað okkur saman sem hópur, akkúrat á þessum árum þegar alnæmið var svona erfitt.

Elísabet Þorgeirsdóttir 1997

Back To Top