skip to Main Content

BLINDUR Í HJÓLASTÓL AÐ SKEMMTA SÉR

Trixie var einn af þessum mönnum sem að ég leit mjög upp til og ég tala nú ekki um eftir að hann veiktist því að það sem að Trixie gerði eftir að hann veiktist var alveg ótrúlegt það var nú alltaf, hann var alltaf mjög sjálfstæður maður og fór sínar leiðir og eftir að hann veiktist, hann lét það ekkert á sig fá. Hann bara hélt sínu striki, hann var alltaf sami gamli Trixie og hélt áfram að vera glaður og skemmta sér og einhvern veginn. Ég man ég frétti af honum, hann fór til Hollands rétt áður en að hann dó í hjólastól, blindur að skemmta sér í Amsterdam og þótti alveg hrikalega gaman. Og það eru nú ekki margir sem að myndu leika það eftir sko. Og það fóru margir á þessum árum af þessum sterku karakterum og þessum litríku karakterum og við, hinir litlausu, urðum eftir eða margir okkar.

Böðvar Björnsson 2004

Back To Top