skip to Main Content

SVONA
FÓLK

Svona fólk fjallar um baráttu íslenskra homma og lesbía fyrir fullum lagalegum mannréttindum. Sú saga er um margt sérstök og óvenjuleg, en fáir minnihlutahópar hafa náð jafn langt á eins skömmum tíma og fá samfélög í heiminum tekið eins snöggum stakkaskiptum og hið íslenska.

Árið 1992 tók kvikmyndagerðarmaðurinn Hrafnhildur Gunnarsdóttir viðtal við vin sinn, Björn Braga Björnsson, um reynslu sína af því að lifa HIV smitaður á Íslandi. Á þessum 26 árum frá því að Hrafnhildur tók fyrsta viðtalið hefur safnast saman u.þ.b. 400 klst af kvikmynduðu efni sem því miður komst ekki allt fyrir í heimildamyndinni né þáttaröðinni. Það var því ákveðið að gera stóran hluta af viðtölunum aðgengilegan bæði í handriti og á kvikmynd fyrir almenning og aðra áhugasama um þessa sögu.

„Framvarðarsveitin í okkar baráttu voru dragdrottningarnar. Það voru þær sem stóðu hugrakkar, fremstar í baráttunni og voru barðar, var nauðgað, þær voru myrtar. Þetta er framvarðarsveitin, þetta er fólkið sem að var fremst á vígvellinum. Og ef við heiðrum þær ekki í Gleðigöngunni þá getum við gleymt þessu.”

Heimir Már Pétursson, 2020

„BDSM er langt frá því að vera tengt bleiku glimmeri. BDSM stereotýpan er miklu sterkari, miklu svartari, dimmari, grimmari, djöfullegri, en sko hún er jafn röng og hún er djöfulleg.”

Magnús Hákonarson, 2020

„Nú fáum við að reyna það á eigin skinni svona í ljósi sögunnar að þegar ákveðin öfl komast til valda sem hafa horn í síðu minnihlutahópa eða finna þeim allt til foráttu að þá verður að vera til einhvers konar skipulagður sýnileiki fyrir minnihlutahópinn og þeir sem tilheyra hópnum verða að fá staðfestingu á því að þau eigi sér bakland. Að það sé fjöldi.”

Páll Óskar Hjálmtýsson, 2020

HAFÐU SAMBAND

KRUMMAFILMS

Gufunesvegur 1, 112 Reykjavík, IS

(+354) 821 1110
hrabba@krummafilms.com
FINNIÐ OKKUR

    FORSÍÐA – PRIDE

    Back To Top